Til leigu nýtt glæsilegt hús í Vaðlaheiði



Höllin er 5 herbergja, 120 fm heilsárshús með flottu útsýni yfir Akureyri. Höllin er staðsett í Veigahall 6 sem er í sama hverfi og Vaðlaborgir, ca 5 km austan Akureyrar.

Húsið er tvær hæðir og skiptist neðri hæðin í forstofu, baðherbergi með sturtu, tvö svefnherbergi með tvíbreiðum rúmum og einu rimlarúmi og eldhús og stofu í opnu rými. Úr stofu er útgengt á stóra verönd með húsgögnum, heitum potti og grilli.

Á efri hæðinni eru tvö svefnherbergi, annað með tvíbreiðu rúmi og hitt með tveim 90 cm breiðum rúmum. Einnig er opið rými sem notað er sem sjónvarpsrými þar eru tvö 90cm rúm og dýnur, þaðan er útgengt á stórar svalir.

Gistimöguleiki er fyrir 8-12 manns. 

Húsið var tekið í notkun í febrúar 2014. 

Hægt er að kaupa þrif á 18.000 kr.

Lágmarks leiga er tvær nætur.

Umgengnisreglur.

Leigandi þarf að hafa ná 20 ára aldri, Leigutaki verður að dvelja í húsinu.

Húsið er leigt með húsgögnum, eldhúsbúnaði og öðrumlausamunum.

Leigjandi ber ábyrgð á öllum búnaði hússins meðan á leigutímastendur og skuldbindur sig til þess að bæta tjón sem verða kann af hans völdum eða þeirra sem dvelja á hansvegum í húsinu á leigutíma.

Leigjandi skal ganga vel um hús og umhverfi, ræsta húsið viðbrottför og sjá um að hver hlutur sé á sínum stað.

Leigjandi skal sjá um að uppþvottavél sé tóm við brottför.

Leigjandi skal virða þær reglur er gilda á skiptidegi þ.e. að losahúsið klukkan 12:00 á brottfarardegi en komutími í húsið er kl.17.00 í upphafi orlofsdvalar.

Leigjandi þarf að hafa með sér handklæði, sápu, sænguver, lök og koddaver. Hægt að leigja lín fyrir 2.000kr per mann.

Dvalargestir eru beðnir um að forðast hávaða með bílaumferð á orlofshúsasvæðinu.

Leigjandi skal ganga vel um staðinn og gæta þess að spilla ekki gróðri eða landi á nokkurn hátt.

Lesið vel leiðbeiningarnar sem festar eru upp í húsunum og skylt er að fara eftir.

Athugið að reykingar eru með öllu óheimilar í húsinu.

Leigjandi skal þrífa húsið vel við brottför.

Þrífa skal vel sturtu, klósett,handlaug og bekkinn þar í kring.

Þurrka af borðum, bekkjum og hilum.

Ryksuga og skúra golf.

Þrífa skal kám af gluggum og speglum.

Þrífa skal ísskáp að innan og utan.

Þrífa skal helluborð og bakarofn.

Þrífa skal örbylgjuofn.

Þrífa skal gasgrill.

Ef ekki er vel þrifið við brottför verður leigjandi rukkaðurum þrif. (18.000kr)